Fyrir okkur skiptir miklu máli að eiga góða  samvinnu við samstarfsaðila okkar. Við höfum mikla reynslu af rekstri og uppbyggingu aðstöðu fyrir þráðlaus fjarskipti og leggjum metnað okkar í að standa vel að verki.

Við leigjum. Við byggjum. Við starfrækjum.

Uppbygging nýrrar aðstöðu

ÍslandsTurnar vinna með fjarskiptafyrirtækjum og sveitarfélögum að uppbyggingu þráðlausrar aðstöðu á hentugum stöðum. Við leitumst eftir staðsetningum sem auka þjónustusvæði og afköst þessara mikilvægu þráðlausu samskiptalausna.

Með því að starfrækja mörg hundruð aðstöður höfum við á að skipa þekkingu og reynslu. ÍslandsTurnar geta tekið að sér uppbyggingu af hvaða stærð sem er og við vinnum verkið hratt og örugglega.

Hafðu samband til þess að kynna þér nánar.

Aðstöðuleiga

Með mörg hundruð aðstöðustaði í rekstri vítt og breitt um landið bjóða ÍslandsTurnar fjarskiptafyrirtækjum margvíslega aðstöðu og staðsetningar til þess að mæta þörfum þeirra til að tryggja þráðlausa tengingu viðskiptavina.

Starfslið okkar hefur umtalsverða reynslu við bæði rekstur og uppbyggingu á aðstöðu fyrir þráðlaus fjarskipti og ljósvakaútsendingar. Við bjóðum uppá langtíma samninga til að tryggja hag allra aðila og leggjum okkur fram um framúrskarandi þjónustu.

Aðstöðurekstur

Við bjóðum fasteignaeigendum möguleika á að auka virði eigna sinna og koma ónotuðum hlutum lands síns eða eignar í verð með því að leigja út ónotaða hluta þeirra fyrir þráðlaus fjarskipti. Starfslið ÍslandsTurna býður fram reynslu sína og þekkingu til þess að sjá um ferlið að öllu leyti, bæði hvað varðar uppbyggingu aðstöðunnar sem og um öruggan rekstur hennar og tryggja þannig land- og fasteignaeigendum reglulegar tekjur til langs tíma.

Hafðu samband til þess að kynna þér nánar.

Ertu með skilaboð, spurningu:

4 + 3 =

Ármúli 6, 108 Reykjavík 
Sími. 560 9999
islandsturnar@islandsturnar.is
www.islandsturnar.is