ÍslandsTurnar var stofnsett árið 2021 og er eigandi að hátt í 400 fjarskiptaturnum víðs vegar um landið. ÍslandsTurnar njóta stuðnings DigitalBridge sem er aðaleigandi fyrirtækisins auk þess að vera einn eigandi fjölmargra sambærilegra fyrirtækja víða um heim. Þannig njóta ÍsandsTurnar samstarfs við systurfélög í öðrum löndum og leggja kapp á að veita viðskiptavinum sínum ávallt bestu lausnir.
Sítengdur heimur fólks og fyrirtækja
Hjá ÍslandsTurnum sérhæfum við okkur í lausnum sem tryggja þráðlaus fjarskipti og ljósvakaútsendingar með því starfrækja og byggja aðstöðu fyrir fjarskiptafyrirtæki og útvarpsþjónustu. Það gerum við með margvíslegum lausnum, svo sem háum fjarskiptamöstrum, snjöllum stauralausnum eða fyrirferðalitlum útfærslum á þökum húsa. Við leggjum áherslu á samnýtingu aðstöðunnar fyrir fleiri en einn fjarskiptaaðila og mætum þannig þörfum þeirra og samfélagsins alls fyrir hagnýtar lausnir.
ÍslandsTurnar hafa á að skipa starfs- og samstarfsfólki sem býr að viðamikilli reynslu á íslenska fjarskiptamarkaðnum og hafa starfað þar um árabil. Með þeirri þekkingu og samstarfi ÍslandsTurna við DigitalBridge systurfélögin leggjum við kapp á að veita framúrskarandi þjónustu.
Rekstur sem byggir á reynslu og þekkingu
Jóakim Reynisson framkvæmdastjóri ÍslandsTurna. Hann var áður tæknilegur framkvæmdastjóri Nova og þar áður tæknistjóri Tals og enn fyrr sérfræðingur hjá Símanum. Auk þess hefur Jóakim komið að rekstri og uppbyggingu farsímafyrirtækja erlendis, svo sem í Pólandi, Búlgaríu og Síle.
Ertu með skilaboð, spurningu:
Ármúli 6, 108 Reykjavík
Sími. 560 9999
islandsturnar@islandsturnar.is
www.islandsturnar.is
